Hafrannsóknastofnun fagnar í dag 19. júní, hátíðis- og baráttudegi kvenna, en á þessum degi árið 1915 fengu sumar íslenskar konur kosningarétt. Miklar breytingar hafa orðið á hag kvenna hjá stofnuninni á liðnum árum og áratugum en fyrr árinu sögðum við frá því að tæplega helmingur af vísindafólki Hafrannsóknastofnunar eru konur en það er ekki langt síðan staðan var töluvert öðruvísi.
Áhafnir eru enn að mestu samsettar af körlum en sl. vetur var blað brotið varðandi framgang kvenna hjá Hafrannsóknastofnun þegar kona tók við stöðu yfirvélstjóra á Bjarna Sæmundssyni en Gyða María Norðfjörð Símonardóttir vélstjóri (nú vélstjóri um borð á Árna Friðrikssyni) tók þá tímabundið við stöðu yfirvélstjóra í fyrsta sinn og uppskar blómvönd fyrir vikið enda söguleg tímamót.